Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. júlí 2021 17:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Svíþjóð: Jón Guðni fékk á sig jöfnunarmark í uppbótartíma
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn í liði Hammarby í svekkjandi jafntefli gegn Halmstad.

Staðan var markalaus í hálfleik en Hammarby komst yfir á 72. mínútu leiksins. Það var komið framyfir venjulegan leiktíma þegar Halmstad jafnaði metin. 1-1 lokatölur.

Sirius vann 2-1 sigur á Mjallby. Aron Bjarnason gekk til liðs við Sirius í febrúar en hann var ekki í hóp í dag og á enn eftir að koma við sögu í deildinni fyrir félagið en hann hefur lagt upp eitt mark í tveimur leikjum í bikarnum.

Hammarby og Sirius eru bæði með 12 stig í 8-9 sæti deildarinnar eftir 9 leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner