Hollenski framherjinn Wout Weghorst er að ganga í raðir tyrkneska félagsins Besiktas á láni frá Burnley.
Weghorst, sem er 29 ára gamall, kom til Burnley frá Wolfsburg í janúar á þessu ári en hann leysti þá af Chris Wood sem fór til Newcastle United.
Framherjinn sýndi skemmtilega takta á köflum með Burnley en gat þó ekki komið í veg fyrir fall. Hann gerði 2 mörk í 20 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Hann verður ekki áfram hjá Burnley á komandi leiktíð en hann er að ganga í raðir Besiktas á láni út tímabilið.
Weghorst er staddur í Istanbúl og mun ganga frá félagaskiptum sínum á næstu dögum.
Athugasemdir