mán 04. júlí 2022 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jesus: Ég er nía
Mynd: Arsenal
„Ég er 'nía'! Ég get spilað þrjá er eða fjórar mismunandi stöður en ég held að mín staða sé í 'níunni'," sagði Gabriel Jesus sem í morgun var kynntur sem nýr leikmaður Arsenal.

Jesus kemur frá Manchester City þar sem honum var stundum stillt upp úti á kantinum en hann vill spila fyrir miðju fremst á vellinum - í níu stöðunni.

Jesus mun spila í treyju númer níu hjá Arsenal. Hjá City lék hann 236 leiki og skoraði 95 mörk.

Jesus er 25 ára og er fjórði leikmaðurinn sem Arsenal kaupir í sumar; á eftir miðjumanninum Fabio Vieira, markverðinum Matt Turner og brasilíska sóknarmanninum Marquinhos.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner