Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 04. júlí 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Matic: Er hérna fyrir Mourinho
Matic er 33 ára serbneskur miðjumaður.
Matic er 33 ára serbneskur miðjumaður.
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic spjallaði við fréttamenn í dag en í síðasta mánuði voru félagaskipti hans frá Manchester United og Roma staðfest.

Roma er þriðja liðið sem Matic spilar fyrir undir stjórn Jose Mourinho, portúgalski stjórinn fékk hann líka til United og Chelsea.

„Ég og Mourinho þekkjum hvorn annan vel. Ég er hérna fyrir hann en það er líka frábært að vera hluti af þessu stórgóða félagi. Það laðar leikmenn að sér og þannig var með mig," segir Matic.

„Ég ætla að skáka Lampard og verða sá leikmaður sem spilar flesta leiki undir stjórn Mourinho. Liðið er með gæðaleikmenn og unga spennandi leikmenn sem eiga bjarta framtíð. Ég get ekki beðið eftir því að byrja."

„Viðræður gengu hratt fyrir sig því metnaður félagsins og þjálfarans er sá sami og minn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner