Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 04. júlí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan í viðræðum við Aston Villa um Douglas Luiz
Douglas Luiz
Douglas Luiz
Mynd: EPA
Ítaliumeistarar Milan eru í viðræðum við Aston Villa um kaup á brasilíska miðjumanninum Douglas Luiz en þetta kemur fram á brasilísku útgáfunni af Goal.

Luiz verður samningslaus á næsta ári og er Villa búið að sætta sig við að hann framlengi ekki samning sinn við félagið.

Milan er í leit að styrkingu á miðjunni eftir að Franck Kessie yfirgaf félagið um mánaðamótin og er Luiz fullkominn kostur.

Luiz, sem er 24 ára gamall, hefur mikinn áhuga á því að fara til Milan en samkvæmt Goal er félagið í viðræðum við Villa um kaup á honum.

Villa er að fara fram á 25 milljónir punda en Milan vill að félagið lækki kröfurnar þar sem hann á aðeins ár eftir af samningi.

Tilfinningin er samt sú að Luiz verði nýr leikmaður Milan áður en glugginn lokar í ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner