Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
banner
   mið 04. ágúst 2021 22:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Birnir: Ég hugsaði 'nei, ég trúi þessu ekki'
Birnir Snær
Birnir Snær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er bara frábært, þetta var lífsnauðsynlegt. Við vorum ekki búnir að skora í þremur leikjum í röð og skorum fjögur (þrjú) í fyrri hálfleik, það var helvíti vel gert," sagði Birnir Snær Ingason, leikmaður HK, eftir sigur gegn FH í kvöld. HK skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik og eitt í seinni hálfleik.

Lestu um leikinn: FH 2 -  4 HK

FH komst yfir strax í byrjun leiks, eftir um 50 sekúndur. HK tók algjörlega yfir eftir það.

„Jesús, ég hugsaði 'nei, ég trúi þessu ekki'. Svo fæ ég dauðafæri með hausnum, vil helst ekki fá hann í hausinn. Við jöfnum snemma og svo fannst mér við alltaf einhvern veginn vera í dauðafærum þegar við fórum í teiginn hjá þeim. Við nýttum fjögur þeirra (þrjú) í fyrri hálfleik."

Grasið var blautt eftir mikla rigningu, það hentar kannski vel?

„Já, geðveikt. Það var bara veisla þegar ég labbaði inn á og sá rennandi blautt gras. Það er ekkert eins gott og gott gras. Völlurinn í Kórnum verður stundum ógeðslega hraður í byrjun leiks, svo þurrkast hann aðeins upp. Ég held það væri of grimmt að bleyta hann meira, kannski hægt að bleyta hann í hálfleik."

Þú fórst framhjá Gunnari í marki FH í öðru markinu áður en þú skoraðir. Var það alltaf planið?

„Nei, ég var mikið að hugsa um að pikk'onum hægra megin við hann en svo ákvað ég að taka hann hinum megin við Gunnar. Þetta var helvíti þröngur vinkill sem ég var kominn út í. Þegar ég sá hann sleikja stöngina inn, það var mjög gott," sagði Birnir.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner