Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 04. ágúst 2022 06:00
Auglýsingar
Þróttur Vogum leitar að þjálfurum fyrir barna og unglingastarfið 22-23
Mynd: Þróttur Vogum

Þróttur Vogum óskar eftir því að ráða þjálfara fyrir yngstu flokka félagsins frá og með 1. september 2022. Leitað er eftir einstaklingi með brennandi ástríðu og áhuga á knattspyrnuþjálfun barna.


Þróttur Vogum heldur úti öflugu barna- og unglingastarfi, æfingum fyrir 8. – 5. flokk stúlkna og drengja allt árið um kring.

Mikið og gott starf er unnið á vegum félagsins og tekur Þróttur þátt í hinum ýmsu knattspyrnumótum víðsvegar um landið ásamt því að halda úti liðum í 5. flokki í Íslandsmóti.

Óskað er eftir að umsókn fylgi ferilskrá yfir menntun og fyrri störf og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar. Þróttur mun koma á móts við þjálfara sem eru að stíga sín fyrstu skref í þjálfun og greiða öll þjálfaranámskeið.

Allar almennar upplýsingar veitir Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar, í síma 892-6789 eða á netfangið [email protected].

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2022.

Vogar eru 1400 manna bæjarfélag á Suðurnesjum og aðeins 19 km frá Hafnarfirði. Í Vogum má finna alla helstu þjónustu ásamt leikskóla og grunnskóla. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar ásamt sundlaug. Upplýsingar um Voga má finna á heimasíðunni: www.vogar.is


Athugasemdir
banner
banner