Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. september 2018 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Shaw: Mourinho hafði líklega rétt fyrir sér
Mynd: Getty Images
Luke Shaw hefur byrjað tímabilið vel með Manchester United og var valinn í enska landsliðshópinn í fyrsta sinn í eitt og hálft ár.

Jose Mourinho gagnrýndi Shaw í fjölmiðlum þegar illa gekk og viðurkennir varnarmaðurinn að gagnrýnin átti rétt á sér.

„Hann var orðinn þreyttur á mér því hann vissi að ég gæti gert betur. Þegar ég horfi til baka, þá var það líklega rétt hjá honum," sagði Shaw.

„Þetta hafa verið erfið ár en ég er andlega sterkari fyrir vikið. Ég hef þroskast mikið á þessum tíma, maður gæti sagt að ég hafi orðið að manni. Núna veit ég hvað ég þarf að gera til að ögra mér og hvetja mig."

Shaw er ánægður hjá Man Utd og vill vera áfram hjá félaginu. Hann var byrjunarliðsmaður á stjórnartíð Louis van Gaal þar til hann fótbrotnaði gegn PSV Eindhoven í september 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner