Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 04. september 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Einungis tveir enskir blaðamenn komu - Fengu mat frá Bombay Bazaar
Mynd: Fótbolti.net
Einungis tveir blaðamenn fylgdu enska landsliðinu til Íslands til að fjalla um leikinn gegn Englandi á morgun.

Um er að ræða Henry Winter hjá The Times og Charlie Wyett hjá The Sun.

Þeir komu til landsins á sunnudag og fóru síðan í fimm daga sóttkví sem þeir klára í dag.

Fótbolti.net ákvað að gleðja kollega sína með því að senda þeim mat á hótel þeirra í gærkvöldi.

Winter og Wyett fengu indverskan mat frá Bombay Bazaar í Ármúla og voru hæstánægðir með sendinguna eftir að hafa borðað misgóðan mat í þessari viku.

Leikur Íslands og Englands fer fram á Laugardalsvelli klukkan 16:00 á morgun en ítarlega verður fjallað um hann á Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner