Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al Arabi, segir í viðtali við RÚV að félagið hafi spurst fyrir um Luis Suarez framherja Barcelona.
Suarez var orðaður við Al Arabi á dögunum en allt bendir nú til þess að Úrúgvæinn gangi til liðs við ítölsku meistarana í Juventus.
Suarez var orðaður við Al Arabi á dögunum en allt bendir nú til þess að Úrúgvæinn gangi til liðs við ítölsku meistarana í Juventus.
„Það voru einhverjar fyrirspurnir sem fóru héðan. En ég veit ekki hversu langt það fór,“ sagði Heimir við RÚV.
„Ég veit ekki hver byrjaði á þessu, en þetta flaug um heiminn. Þetta var bara ágætis brandari fyrir okkur. Ég held að Luis Suárez sé aðeins of góður til að spila fyrir Al Arabi á þessari stundu. En vonandi einhvern tímann."
Heimir tók við Al Arabi í lok árs 2018 og í viðtalinu hjá RÚV ræðir hann um lífið í Katar, stöðuna hjá félaginu og margt fleira.
Smeltu hér til að lesa viðtalið í heild
Athugasemdir