Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 04. september 2020 12:08
Magnús Már Einarsson
Maguire verður valinn aftur í landsliðið í október
Icelandair
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate. landsliðsþjálfari Englands, segir að Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, verði valinn aftur í enska landsliðshópinn fyrir leiki í næsta mánuði.

Maguire var tekinn út úr hópnum sem mætir Íslandi og Grikklandi eftir að hann var ákærður fyrir að ráðast á lögreglumenn í sumarfríi sínu í Grikklandi.

„Við höfum verið í sambandi síðustu tvær og hálfa viku. Þetta hefur verið mjög erfiður kafli fyrir hann," sagði Southgate á fréttamannafundi nú rétt í þessu.

„Síðustu dagar hafa verið mikilvægir fyrir hann til að slaka á og fá hvíld andlega."

„Hann fékk stutt frí og það sem gerðist í Grikklandi hefur haft áhrif á hann. Við munum klárlega reyna að velja hann í hópinn í október."

Athugasemdir
banner
banner