Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 04. september 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin um helgina - England leitar hefndar gegn Íslandi
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Getty Images
Þjóðadeildin er í fullum gangi og eru 27 leikir á dagskrá um helgina. Tíu þeirra verða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og aukastöðvum.

Veislan hefst í kvöld þegar Holland mætir Póllandi á sama tíma og Ítalía tekur á móti Bosníu í A-deild. Báðir leikirnir verða sýndir beint.

Í B-deildinni á Noregur heimaleik við Austurríki á meðan Skotar taka á móti Ísrael. Norður-Írar heimsækja Rúmeníu og Slóvakía mætir Tékklandi.

Á morgun, laugardag, á Ísland leik við England á Laugardalsvelli klukkan 16:00. Það vantar nokkra lykilmenn í íslenska landsliðshópinn og munu Englendingar mæta blóðþyrstir til leiks, enda er þetta fyrsta viðureign þjóðanna síðan Ísland sló England óvænt úr leik á EM 2016.

Danmörk og Belgía eru einnig í íslenska riðlinum og mætast um kvöldið.

Þá verður einnig sýnt beint frá leik Svía gegn heimsmeisturum Frakka og stórleik Portúgal gegn Króatíu.

Þýskaland og Spánn eiga svo heimaleiki á sunnudag en Stöð 2 Sport 2 sýnir einnig beint frá tveimur leikjum í B-deild, þar sem Wales tekur á móti Búlgaríu á meðan Írland fær Finnland í heimsókn.

Færeyjar heimsækja Andorru í D-deildinni á sunnudaginn.

Föstudagur:
UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
18:45 Holland - Pólland (Stöð 2 Sport 2)
18:45 Ítalía - Bosnia Herzegovina (Stöð 2 Sport 3)

UEFA NATIONS LEAGUE B: Group Stage
18:45 Slóvakía - Tékkland
18:45 Skotland - Israel
18:45 Rúmenía - Norður Írland
18:45 Noregur - Austurríki

UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
16:00 Litháen - Kasakstan
18:45 Hvíta Rússland - Albanía



Laugardagur:
UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
16:00 Ísland - England (Stöð 2 Sport)
18:45 Svíþjóð - Frakkland (Stöð 2 Sport)
18:45 Danmörk - Belgía (Stöð 2 Sport 2)
18:45 Portúgal - Króatía (Stöð 2 Sport 3)

UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
13:00 Norður Makedónía - Armenia
16:00 Kýpur - Montenegro
16:00 Eistland - Georgia
16:00 Azerbaijan - Luxembourg

UEFA NATIONS LEAGUE D: Group Stage
13:00 Gibraltar - San Marino



Sunnudagur:
UEFA NATIONS LEAGUE A: Group Stage
18:45 Sviss - Þýskaland (Stöð 2 Sport 2)
18:45 Spánn - Úkraína (Stöð 2 Sport 3)

UEFA NATIONS LEAGUE B: Group Stage
13:00 Wales - Bulgaria (Stöð 2 Sport 2)
16:00 Írland - Finnland (Stöð 2 Sport 2)
16:00 Ungverjaland - Rússland
18:45 Serbía - Tyrkland

UEFA NATIONS LEAGUE C: Group Stage
16:00 Slovenia - Moldova
18:45 Kósóvó - Grikkland

UEFA NATIONS LEAGUE D: Group Stage
13:00 Andorra - Færeyjar
18:45 Malta - Lettland
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner