Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 04. september 2021 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnór Ingvi lagði upp og fékk rautt í sigri
Mynd: Getty Images
New England Revolution vann Philadelphia Union í MLS deildinni í Bandaríkjunum í nótt.

Arnór Ingvi Traustason var í byrjunarliði New England. Leiknum lauk með 1-0 sigri en Arnór lagði upp markið á Matt Polster á 33. mínútu.

Arnór fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 59. mínútu en hann fékk fyrra gula spjaldið aðeins fjórum mínútum áður. Þetta var önnur brottvísunin hans á tímabilinu en hann fékk rautt spjald gegn DC United þann 19. ágúst.

Leikmenn Philadelphia reyndu hvað þeir gátu að jafna en allt kom fyrir ekki. Leikmaður New England var með áhugaverða takta undir lok leiksins er hann reyndi að tefja, atvikið má sjá á myndbandi hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner