Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 04. september 2021 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ási Arnars: Reynum að enda þetta eins vel og við getum
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir vann 1-4 sigur á Kórdrengjum í Lengjudeild karla í dag. Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis var að vonum hress eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Kórdrengir 1 -  4 Fjölnir

„Ég er mjög kátur með frammistöðu manna í dag. Frábær leikur af okkar hálfu þá tek ég liðið allt saman og hrósa þeim gríðarlega. Rosalega margir sem áttu góðan leik í dag, Sigurjón varði frábærlega 3-4 sinnum, vörnin stóð sig vel allan leikinn, miðjan, sóknarleikurinn, það voru allir á tánum þannig að þetta var bara frábær liðsframmistaða."

Hans Viktor Guðmundsson kom inná í hálfleik og skoraði tvö mörk en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla. Þá var Dofri Snorrason í byrjunarliðinu en hann hefur einnig verið mikið frá.

„Það verður að koma fram að auðvitað höfum við saknað Hans Viktors og Dofra sem að er búinn að missa af meiri hlutann af tímabilinu útaf erfiðum aftanlæris meiðslum og Hans með sín meðsli þannig að við höfum aðeins saknað þeirra og það er gaman að fá þá inn núna og vonandi náum við að sýna í þeim leikjum sem eftir eru hvað í okkur býr," sagði Ási Arnars.

Fjölnir er fjórum stigum á eftir Kórdrengjum sem sitja í 3. sæti og eiga leik til góða. Ási segir að liðið horfi bara í einn leik í einu.

„Fyrst og fremst þá er bara að horfa í hvern leik og reyna ná í eins góð úrslit og við getum og reyna enda þetta eins vel og við getum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner