Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   lau 04. september 2021 18:54
Brynjar Óli Ágústsson
Gunnar: Stelpurnar lögðu mikið á sig og þetta er risa stig fyrir okkur!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Virkilega sætt og frábært að ná í stig á móti Íslandsmeisturnum.'' segir Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíks, eftir mikilvægt 1-1 jafntefli gegn Val á heimavelli.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Valur

„Stelpurnar lögðu mikið á sig og þetta er risa stig fyrir okkur!''

Keflavík liggja í 8. sæti efitr þennan leik og eru lílegri í að halda sér áfram sæti í deildinni

„Eins og leikirnir fóru í dag þá tölfræðilega getum við ennþá fallið, Tindastóll er 3 stigum frá okkur, en við eigum þarna markatölur á þær,''

„En við erum ekkert að hugsa um það. Við eigum einn leik eftir og ætlum að klára mótið bara á þeim nótum sem að við erum búin að vera á undanfarið. Við höfum átt nokkra góða leiki í röð og við ætlum bara að halda því áfram með stæl.''

Það var mikill vindur í Keflavík og virtist hann hafa áhrif á mark Keflavíks í dag.

„Já vissulega, þetta var bara fín fyrirgjöf og hún þurti ekki að skalla neitt fast, en boltinn sveif þarna í góðan boga yfir. Það var vindur hérna hjá okkur í dag. Spurning líka með markið þeirra hvort að vindurinn hafði eitthvað að segja þar, það var geggjað mark hjá henni [Ída Marín Hermannsdóttir] og kannski vindurinn eitthvað aðeins hjálpað þar til.''

Keflavík eiga Þór/KA í sinn síðasta leik í tímabilinu og geta þær tryggt sér sæti áfram í Pepsi Max deildinni með stig í þann leik.

„Við förum í þann leik til þess að ná okkur stigi og þá erum við að gulltryggja okkur og það er ekkert annað sem kemur til greina hjá okkur''

Hægt er að horfa á allt viðtalið hér fyrir ofan
Athugasemdir
banner
banner