Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. september 2021 21:00
Aksentije Milisic
Haukar mættu til leiks með Fokk ofbeldi húfur
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Haukar mættu ÍR á útivelli í 2. deild karla í dag og fóru þar með öruggan 4-0 sigur af hólmi.

Leikmenn Hauka mættu til leiks með Fokk ofbeldi húfu eins og má sjá á myndinni neðst í fréttinni.

Heferðin Fokk ofbeldi var sett á laggirnar árið 2015 en mjög mikil umræða hefur verið síðustu daga um kynbundið ofbeldi að hálfu landsliðsmanna Íslands.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR og Guðjón Þórðarson, þjálfari Víkings Ó, mættu einnig með eins húfur í leiki á dögunum.

Frosti Brynjólfsson skoraði tvennu fyrir Hauka í dag og Máni Mar Steinbjörnsson gerði eitt. Síðasta markið var sjálfsmark.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner