Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 04. september 2021 18:15
Sverrir Örn Einarsson
Jón Sveins: Hefja kannski nýjan kafla í sögu þessa stóra fornfræga félags
Lengjudeildin
Jón Sveinsson þjálfari Fram
Jón Sveinsson þjálfari Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst við bara mjög góðir í dag og mættum tilbúnir í þennan leik. Við vissum alveg að veðrið yrði svona það var spáin og við ætluðum bara að leggja okkur fram og stjórna þeim hlutum sem við getum stjórnað.“
Sagði Jón Sveinsson þjálfari Fram við fréttaritara Fótbolta.net eftir 2-0 sigur hans manna gegn Grindavík í rokleik suður með sjó.

Lestu um leikinn: Grindavík 0 -  2 Fram

Sigurinn tryggir Fram sigur í Lengjudeildinni þetta árið en talsvert er síðan liðið tryggði sér sæti í Pepsi Max deildinni að ári. Fram er þó ekki markmiðalaust fram að lokum móts en liðið getur enn farið taplaust í gegnum deildina.

„VIð höfum ekkert annað markmið eftir. Fyrsta markmið var að vinna deildina og það var bara þannig að við settumst niður í vor eftir vonbrigðin í fyrra og ákváðum það að eina markmiðið sem við gátum sett í ár væri að vinna deildina. Það er komið núna og tveir leikir eftir sem við þurfum bara að ná að gíra okkur í og klára þetta með sæmd “

Fram sem hefur haft aðsetur í Safamýri undanfarin ár flytur á nýjan og glæsilegan heimavöll í Úlfarsárdal fyrir næsta tímabil og hefur leik í Pepsi Max þar.

„Það er frábært að fá tækifæri til þess að hefja kannski nýjan kafla í sögu þessa stóra fornfræga félags í efstu deild á nýjum velli. Ég held að það sé bara tilhlökkun hjá öllum sem í kringum þetta starfa að fara í það.“

Allt viðtalið við Jón má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner