Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 04. september 2021 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kærður fyrir 9 ára gamlar Twitter færslur
Úr leik Middlesbrough
Úr leik Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið hefur kært Marc Bola varnarmann Middlesbrough í Championship deildinni.

Kæran er vegna ummæla sem hann lét falla á Twitter þegar hann var 14 ára gamall árið 2012.

Ummælin eru sögð af kynferðislegum toga og stangast á við lög og reglur enska knattspyrnusambandsins. Hann hefur fengið frest til 20 september til að svara fyrir sig.

Jarred Bowen var kærður fyrir rasískt tíst sem hann skrifaði árið 2012 en hann slapp við áminningu eftir að hann baðst afsökunar.
Athugasemdir
banner