Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, vill fá 500 þúsund pund í viku hjá félaginu ef hann á að krota undir nýjan samning.
Salah á minna en tvö ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool og Jurgen Klopp, stjóri liðsins, sagði á dögunum að félagið er í viðræðum við Salah.
Samkvæmt Daily Mirror, þá er Salah að biðja um 500 þúsund pund á viku en hann yrði þá lang launahæsti leikmaður félagsins. Til samanburðar þá er Virgil van Dijk að fá 220 þúsund pund á viku.
Klopp vill ólmur að Salah feti í fótspor van Dijk, Trent Alexander-Arnold og Jordan Henderson og skrifi undir nýjan samning.
„Mo er augljóslega að standa sig frábærlega, bæði sem leikmaður og manneskja. Hvernig hann hefur hagað sér frá fyrsta degi er til fyrirmyndar," sagði Klopp um leikmanninn.
Athugasemdir