Úkraína og Frakkland áttust við í kvöld í undankeppni HM en spilað var í Úkraínu.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Mykola Shaparenko kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleiknum en markið var glæsilegt. Þetta var fyrsta landsliðsmark Shaparenko á ferlinum.
Í byrjun síðar hálfleiks jafnaði Anthony Martial metin en nær komust Frakkarnir ekki. Úkraína hefur nú gert fimm jafntefli í fyrstu fimm leikjum sínum í riðlinum.
Markið hjá Shaparenko má sjá hér fyrir neðan hann fær boltann fyrir utan teiginn og tekur skotið í fyrsta sem hafnar í bláhorninu, óverjandi fyrir Hugo Lloris.
The Shaparenko goal is EVEN BETTER with Ukrainian commentary from Viktor Vatsko (Futbol 1/2/3) pic.twitter.com/SOfu4dmkGY
— Zorya Londonsk (@ZoryaLondonsk) September 4, 2021
Athugasemdir