Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. september 2021 13:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neymar gagnrýndur - Í stærri treyju en venjulega
Neymar í leiknum í nótt
Neymar í leiknum í nótt
Mynd: EPA
Brasilía vann 1-0 sigur á Chile í undankeppni HM í nótt.

Neymar lék allan leikinn fyrir Brasilíu en þetta er í fyrsta sinn sem hann spilar 90 mínútur á tímabilinu. Hann byrjaði sinn fyrsta leik fyrir PSG á dögunum en var skipt af velli fyrir Messi eftir klukkutíma leik.

Hann hefur fengið mikla gagnrýni að undanförnu fyrir að vera í lélegu formi og það var engin breyting á því í nótt. Hann kom með sérstaka afsökun fyrir því á Instagram.

Hann sagði að hann hafi verið í stærri treyju en venjulega og mun skipta yfir í 'medium' aftur til að sýna fram á það að hann sé í topp formi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner