Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, mætti í viðtal eftir dramatískan sigur gegn ÍBV, 3-2, í næst síðustu umferð Pepsi Max-deildar kvenna.
Þróttur tók 2-0 forystu í leiknum en ÍBV sýndi mikinn karakter og jafnaði metin í 2-2. Þróttur náði svo inn sigurmarkinu áður en flautað var af.
Þróttur tók 2-0 forystu í leiknum en ÍBV sýndi mikinn karakter og jafnaði metin í 2-2. Þróttur náði svo inn sigurmarkinu áður en flautað var af.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 2 ÍBV
„Ég er ánægður að fá þrjú stig. Þetta var leikur sem við áttum að drepa í fyrri hálfleik eða snemma í seinni. Þær komust aftur inn í þetta og hrós á ÍBV. Það er gott að fá þrjú stig þegar við vorum ekki að spila það vel," sagði Nik, sem mætti aftur snemma til Íslands í morgun eftir að hafa verið í brúðkaupi hjá bróður sínum í Englandi.
Þetta var síðasti heimaleikur Þróttar á tímabilinu. ,Það er gott að fá þrjú stig í síðasta heimaleik tímabilsins, fyrir stuðningsmennina líka því þetta eru bestu stuðningsmenn landsins."
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir spilaði rúmar tíu mínútur en hún hefur verið að glíma við meiðsli. Þá var Linda Líf Boama ekki með í dag, en þá stíga aðrir leikmenn upp eins og Andrea Rut Bjarnadóttir gerði með frammistöðu sinni.
„Það sem hefur vantað hjá Andreu er 'end product' eins og mörk. Hún hefur hæfileikana til að verða einn af bestu leikmönnunum. Það er gott að sjá að hún er að bæta mörkum við leik sinn, og hún lagði líka upp eftir gott fast leikatriði. Hún er að stíga upp í hlutverk sem er frábært."
Þróttur er næstum því búið að tryggja sér þriðja sæti deildarinnar. Hefði Nik tekið því fyrir tímabilið? „Hundrað prósent! Það fyrsta sem við hugsuðum um var að halda sætinu í deildinni. Þegar við vissum að við vorum nógu góðar fyrir það, þá var markmiðið topp fimm. Svo að ná topp þremur. Ég er mjög ánægður með hvernig stelpurnar hafa staðið sig."
Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir