Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 04. september 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Potter: Gott ef Bissouma myndi skora meira
Mynd: Getty Images
Það verður að teljast með ólíkindum að Yves Bissouma sé ennþá leikmaður Brighton eftir að félagsskiptaglugganum lauk á dögunum.

Þessi 25 ára gamli miðjumaður hefur vakið verðskuldaða athygli. Hann var lengi vel orðaður við lið á borð við Arsenal, Manchester United og Liverpool.

„Það væri gott ef hann myndi skora meira. Það fer allt eftir því hvar hann spilar á vellinum," sagði Graham Potter þjálfari Brighton.

„Mér finnst hann vera þróast sem miðjumaður sem getur varist. Hann vinnur marga bolta. Hann er með getu og gæði til að skora líka. Sem lið þurfum við að fá fleiri mörk frá fleiri stöðum á völlinum. Það er nokkuð augljóst. Hann getur gert það."
Athugasemdir
banner
banner