Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. september 2021 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sancho snýr aftur til Manchester vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho leikmaður Manchester United og enska landsliðsins mun ekki leika með landsliðinu í næstu tveimur leikjum eftir að hafa orðið fyrir meiðslum á æfingu.

Sancho varð fyrir smá hnjaski á æfingu fyrir leik liðsins gegn Ungverjalandi. Hann missti því af leiknum og hefur hann nú yfirgefið herbúðir landsliðsins og snúið aftur til Manchester.

Hann mun því undirbúa sig til að verða klár fyrir viðureign Man Utd gegn Newcastle þann 11 september en það er búist við því að hann verði klár í slaginn.

Hann missir af leikjum landsliðsins gegn Andorra og Póllandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner