Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 04. september 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tomiyasu missti af landsleik til að komast til Arsenal
Tomiyasu í leik með Bologna
Tomiyasu í leik með Bologna
Mynd: EPA
Takehiro Tomiyasu gekk í raðir Arsenal á lokadegi félagsskiptagluggans frá Bologna á Ítalíu.

Tomiyasu var með Japanska landsliðinu. Liðið lék sinn fyrsta leik í undankeppni HM gegn Oman á fimmtudaginn. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Oman.

Tomiyasu var þakklátur þjálfaranum fyrir að gefa sér frí frá leiknum til að ganga úr skugga um að félagsskiptin til Arsenal myndu ganga vel fyrir sig.

Tomiyasu verður væntanlega klár í slaginn þegar Japan fær Kína í heimsókn á þriðjudaginn.
Athugasemdir
banner
banner