Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 04. september 2021 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Wolves tilbúið að tvöfalda laun Traore
Mynd: Getty Images
Samkvæmt Daily Mail ætlar Wolves að bjóða Adama Traore nýjan samning og gera hann að launahæsta leikmanni liðsins.

Traore á tvö ár eftir af samningnum sínum en Wolves er tilbúið að framlengja um tvö ár og tvöfalda launin hans svo hann verði með 120 þúsund pund á viku.

Talið er að Tottenham hafi boðið 30 milljónir punda í leikmanninn í sumar en Wolves hafi sett 50 milljón punda verðmiða á hann.

Traore er einn af lykilmönnum liðsins en Wolves er án stiga eftir þrjá fyrstu leikina í Úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner