Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 04. september 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bandaríkin: Óttar Magnús í markapásu
Mynd: Oakland Roots

Oakland Roots 0 - 2 San Antonio
0-1 Samuel Adeniran ('5)
0-2 Samuel Adeniran ('85)


Óttar Magnús Karlsson byrjaði á bekknum og fékk að spila seinni hálfleikinn er Oakland Roots tapaði heimaleik 0-2 gegn San Antonio FC.

Óttar Magnús mætti aftur til leiks í dag eftir að hafa misst af þremur leikjum Oakland í röð vegna nýfædds barns. Óttar og kærasta hans eignuðust frumburðinn um miðjan ágúst og hefur markavélinni Óttar ekki tekist að skora síðan um miðjan júlí.

Óttar var lengi vel markahæstur í USL deildinni, B-deild Bandaríkjamanna, en er búinn að missa nokkra leikmenn framúr sér þar sem Milan Iloski er atkvæðamestur með 18 mörk. Óttar hefur ekki skorað í síðustu sex deildarleikjum Oakland en er kominn með 15 mörk.

Oakland er fjórum stigum frá sæti í úrslitakeppninni þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner