Það eru fimm leikir á dagskrá í tuttugustu umferð Bestu deildar karla í dag. Það eru aðeins þrjár umferðir eftir af gamla deildartímabilinu áður en deildinni verður skipt upp í efri og neðri hluta.
Bikar- og Íslandsmeistarar Víkings R. hefja leik klukkan 14:00 og taka á móti ÍBV. Þeir þurfa sigur í toppbaráttunni á meðan Eyjamenn eru að gera sitt besta til að safna stigum þar sem þeir munu að öllum líkindum leika í neðri hluta úrslitakeppninnar.
Á sama tíma fer FH til Breiðholts að heimsækja Leikni R. í mikilvægum fallbaráttuslag þar sem Hafnfirðingar eru óvænt í fallhættu ásamt nýliðum Leiknis.
ÍA og KR eigast þá við í öðrum mikilvægum slag þar sem Skagamönnum vantar stig í fallbaráttunni á meðan Vesturbæingar eru nálægt því að tryggja sér sæti í efri hlutanum.
Fram, sem er að reyna við sjötta sætið, tekur svo á móti toppbaráttuliði KA áður en Stjarnan og Keflavík eigast við í lokaleik dagsins.
Stöð 2 Sport er með sýningarréttinn á Bestu deildinni.
Leikir dagsins:
14:00 Víkingur R.-ÍBV (Víkingsvöllur)
14:00 Leiknir R.-FH (Domusnovavöllurinn)
17:00 ÍA-KR (Norðurálsvöllurinn)
17:00 Fram-KA (Framvöllur - Úlfarsárdal)
19:15 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn)
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |