Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. september 2022 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
U19 kvenna: Vigdís Lilja skoraði í tapi gegn Noregi
Mynd: KSÍ

Ísland U19 1 - 3 Noregur U19
Mark Íslands:
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir ('92)


U19 kvennalandsliðið er í Svíþjóð þessa dagana að spila æfingaleiki við sterkar nágrannaþjóðir okkar Noreg og Svíþjóð.

Þær byrjuðu á leik við Noreg í dag og töpuðu honum með tveggja marka mun.

Noregur komst í þriggja marka forystu og náði Blikastelpan Vigdís Lilja Kristjánsdóttir að minnka muninn með mjög góðu skoti í uppbótartíma. Boltinn barst til hennar innan vítateigs og smellti hún honum upp í þaknetið.

Stelpurnar mæta sænska landsliðinu á þriðjudaginn og verður sá leikur sýndur í beinni útsendingu á vefsíðu KSÍ.


Athugasemdir
banner
banner
banner