Þróttur R. vann 5-0 sigur á KR í Pepsi Max deild kvenna í dag.
„Ég er ótrúlega ánægð með liðið og mér finnst við bara búnar að standa okkur ótrúlega vel í síðustu leikjum og erum ekkert að gefa eftir á móti þessum stóru liðum.“ sagði Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, eftir 5-0 sigur á móti KR í Pepsi Max deild kvenna fyrr í dag.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 - 0 KR
„Ég veit það ekki alveg, það var bara svona það litla. Held að það var bara meiri vilji til að vinna og setja mörk og svoleiðis.“
„Þær eru helvíti góðar að klára færin sín og svo eru þær bara góðar í að spila upp og ná að setja hann inn í markið.“
Fyrir mót var Þrótti spáð falli, en liðið er nú í 6.sæti. Fallbaráttan er þó galopin og mörg lið sem berjast um sæti í deildinni. Álfhildur er gríðarlega stolt af sínu liði og segir að liðið hefur staðið sig ótrúlega vel.
„Já auðvitað, ég held þetta sé örugglega besti árangur sem að Þróttur, kvennaliðið hefur náð hingað til. Það er ótrúlega gaman að ná því og við höfum staðið okkur ótrúlega vel.“
Viðtalið í heild sinni má nálgast í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir