Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. október 2020 13:10
Benjamín Þórðarson
Byrjunarlið ÍA og FH: Stefán Teitur og Tryggvi báðir í banni hjá ÍA
Nánast óbreytt hjá FH frá því á fimmtudaginn.
Tryggvi Hrafn er í banni í dag
Tryggvi Hrafn er í banni í dag
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Stefán Teitur er líka í banni hjá ÍA.
Stefán Teitur er líka í banni hjá ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Núna kl 14:00 hefst leikur ÍA og FH á Norðurálsvellinum á Akranesi en leikurinn er liður í 18.umferð Pepsimax deildar karla.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

Það eru talsverðar breytingar á byrjunarliði ÍA frá því í jafnteflisleiknum við Víking R. síðasta sunnudag. Alls gerir Jóhannes Karl þjálfari ÍA fjórar breytingar á liðinu. Út fara þeir Steinar Þorsteinsson, Marcus Johansson, Stefán Teitur Þórðarson og Tryggvi Hrafn Haraldsson. Þeir tveir síðast nefndu eru ekki í hóp en þeir eru væntanlega báðir á leið í atvinnumennsku en eru hins vegar báðir í banni í dag og spila þess vegna ekki. Inn í liðið koma Sindri Snær Magnússon, Hallur Flosason, Hlynur Sævar Jónsson og Ingi Sigurðsson.

Logi Ólafs og Eiður Smári þjálfarar FH gera hins vegar bara eina breytingu frá jafnteflinu við Stjörnuna á fimmtudaginn. Guðmann Þórisson kemur inn í vörnina í staðfinn fyrir Hjört Loga Valgarðsson.

Byrjunarlið ÍA
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Óttar Bjarni Guðmundsson
4. Aron Kristófer Lárusson
6. Jón Gísli Eyland Gíslason
7. Sindri Snær Magnússon
8. Hallur Flosason
16. Brynjar Snær Pálsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
19. Ísak Snær Þorvaldsson
23. Ingi Þór Sigurðsson
24. Hlynur Sævar Jónsson

Byrjurnarlið FH
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Pétur Viðarsson
7. Steven Lennon
9. Jónatan Ingi Jónsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Ólafur Karl Finsen
18. Eggert Gunnþór Jónsson
21. Guðmann Þórisson
29. Þórir Jóhann Helgason

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner