Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. október 2020 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
England: Arsenal og Wolves unnu á heimavelli
Mynd: Getty Images
Arsenal og Wolves voru að vinna heimaleiki sína í ensku úrvalsdeildinni sem hófust samtímis.

Arsenal tók á móti Sheffield United í nokkuð bragðdaufum leik. Heimamenn voru betri stærsta hluta leiksins og komust í tveggja marka forystu.

Bukayo Saka skoraði sjaldgæft skallamark á 61. mínútu og tvöfaldaði varamaðurinn Nicolas Pepe forystuna skömmu síðar. Hector Bellerin átti báðar stoðsendingarnar.

Gestirnir blésu til sóknar eftir mark Pepe en náðu ekki að skapa sér mikið. David McGoldrick minnkaði muninn með frábæru skoti á 83. mínútu en nær komust lærisveinar Chris Wilder ekki og lokatölur 2-1.

Arsenal er með níu stig eftir fjórar umferðir á meðan Sheffield er áfram án stiga, með aðeins eitt mark skorað.

Arsenal 2 - 1 Sheffield United
1-0 Bukayo Saka ('61)
2-0 Nicolas Pepe ('64)
2-1 David McGoldrick ('83)

Wolves tók þá á móti nýliðum Fulham. Staðan var markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik þar sem Úlfarnir voru þó líklegri.

Pedro Neto skoraði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik og náðu Úlfarnir að halda út gegn bitlausu liði Fulham.

Wolves er með sex stig eftir sigurinn en Fulham er í botnsætinu án stiga.

Wolves 1 - 0 Fulham
1-0 Pedro Neto ('56)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner