Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. október 2020 13:44
Ívan Guðjón Baldursson
Heimili Ed Woodward vaktað í kringum gluggadag
Mynd: Getty Images
Mirror greinir frá því að öryggisráðstafanir hafi verið gerðar í kringum hús Ed Woodward, framkvæmdastjóra Manchester United, næstu daga.

Félagaskiptaglugginn er að líða undir lok og eru margir stuðningsmenn Man Utd ósáttir með hversu illa félaginu gekk á leikmannamarkaðinum.

Woodward hefur yfirumsjón með leikmannakaupum félagsins og hefur verið gagnrýndur harkalega af stuðningsmönnum. Á lokadegi síðasta glugga í janúar söfnuðust rúmlega 20 stuðningsmenn saman fyrir utan hús Woodward og ollu eignarspjöllum með málningarbrúsum, reyksprengjum og blysum.

Það ríkir enn mikil ólga meðal stuðningsmanna Rauðu djöflanna þrátt fyrir frábæran seinni hluta tímabils á síðustu leiktíð sem sá lærisveina Ole Gunnar Solskjær næla sér í Meistaradeildarsæti.

Woodward býr þó ekki í húsi sínu í Cheshire heldur er hann mest með fjölskyldunni í húsi sem þau eiga rétt fyrir utan London.

Félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld klukkan 22:00 á íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner