Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. október 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Tveir ómissandi stórleikir
Mynd: Getty Images
Það er svo sannarlega ómissandi dagur í ítalska boltanum í dag þar sem sex leikir eru á dagskrá, fjórir í beinni útsendingu hér á landi og tveir af þeim eru stórleikir.

Fjörið byrjar snemma í dag þegar Atalanta mætir Cagliari. Rúmum hálftíma eftir leikslok fer stórleikur Lazio og Inter af stað en þessi lið stríddu bæði Juventus í baráttunni um Ítalíumeistaratitilinn á síðustu leiktíð.

Milan tekur svo á móti Spezia í beinni útsendingu áður en síðasti og að margra mati stærsti leikur dagsins fer fram. Þar er það norðrið sem mætir suðrinu í hatrammri viðureign Juventus og Napoli.

Það ríkir mikil andúð á milli félaganna af ýmsum ástæðum og verður áhugavert að sjá hvernig leikurinn spilast í kvöld.

Leikir dagsins:
10:30 Atalanta - Cagliari (Stöð 2 Sport 2)
13:00 Benevento - Bologna
13:00 Lazio - Inter (Stöð 2 Sport 4)
13:00 Parma - Verona
16:00 Milan - Spezia (Stöð 2 Sport 2)
18:45 Juventus - Napoli (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 32 26 5 1 77 17 +60 83
2 Milan 32 21 6 5 63 37 +26 69
3 Juventus 32 18 9 5 45 24 +21 63
4 Bologna 32 16 11 5 45 25 +20 59
5 Roma 31 16 7 8 56 35 +21 55
6 Atalanta 31 15 6 10 57 36 +21 51
7 Napoli 32 13 10 9 50 40 +10 49
8 Lazio 32 15 4 13 41 35 +6 49
9 Torino 32 11 12 9 31 29 +2 45
10 Fiorentina 31 12 8 11 43 36 +7 44
11 Monza 32 11 10 11 34 41 -7 43
12 Genoa 32 9 12 11 35 39 -4 39
13 Lecce 32 7 11 14 27 48 -21 32
14 Cagliari 32 7 10 15 34 54 -20 31
15 Verona 32 6 10 16 30 44 -14 28
16 Udinese 31 4 16 11 30 47 -17 28
17 Empoli 32 7 7 18 25 48 -23 28
18 Frosinone 32 6 9 17 40 63 -23 27
19 Sassuolo 32 6 8 18 39 62 -23 26
20 Salernitana 32 2 9 21 26 68 -42 15
Athugasemdir
banner
banner
banner