Kantmaðurinn efnilegi Facundo Pellistri er á leið til Manchester United samkvæmt Sebas Giovanelli, virtum fréttamanni frá Úrúgvæ.
Pellistri er 18 ára gamall og verður kynntur sem leikmaður Man Utd á morgun. Hann þykir mikið efni og sýndu Chelsea, Manchester City og Juventus honum áhuga í sumar.
Pellistri er aðeins hugsaður sem framtíðarleikmaður og er ekki búist við að hann verði mikið í kringum aðalliðið á tímabilinu.
Man Utd mun borga um 10 milljónir evra fyrir ungstirnið. Penarol mun auk þess fá prósentu ef leikmaðurinn verður seldur frá Rauðu djöflunum.
Athugasemdir