Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. október 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Fyrsta alvöru prófið fyrir Koeman
Lionel Messi er líklega að spila sitt síðasta tímabil með Barcelona.
Lionel Messi er líklega að spila sitt síðasta tímabil með Barcelona.
Mynd: Getty Images
Osasuna og Celta eigast við í beinni útsendingu í fyrsta leik dagsins í spænska boltanum, áður en Alaves tekur á móti Athletic Bilbao.

Real Madrid heimsækir svo Levante og getur náð toppsætinu með sigri. Lærisveinar Zinedine Zidane eru með sjö stig eftir þrjár umferðir.

Nýliðar Cadiz hafa farið þokkalega vel af stað og eiga þeir leik við Granada áður en stórleikur helgarinnar á sér stað.

Þar tekur Barcelona á móti Sevilla í hörkuslag en bæði lið eru með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar.

Þetta verður fyrsta alvöru prófið fyrir Ronald Koeman við stjórnvölinn gegn öðru stórliði.

Leikir dagsins:
10:00 Osasuna - Celta (Stöð 2 Sport 4)
12:00 Alaves - Athletic Bilbao
14:00 Levante - Real Madrid (Stöð 2 Sport 2)
16:30 Cadiz - Granada CF
19:00 Barcelona - Sevilla (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner
banner