sun 04. október 2020 16:41
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Real Madrid á toppinn - Bilbao tapaði
Mynd: Getty Images
Þremur fyrstu leikjum dagsins í spænska boltanum er lokið. Þar bar Real Madrid sigur úr býtum gegn Levante.

Vinicius Junior gerði fyrsta markið snemma með hnitmiðuðu skoti eftir hornspyrnu og var leikurinn nokkuð jafn. Real var betri í fyrri hálfleik en heimamenn tóku stjórnina eftir leikhlé og komust nokkrum sinnum nálægt því að jafna.

Viðureigninni lauk þó með marki frá Karim Benzema eftir skyndisókn á 95. mínútu.

Eden Hazard var ekki í hóp vegna meiðsla og spilaði Rodrygo Goes síðustu 25 mínúturnar. Hann lagði markið upp fyrir Higuain.

Spánarmeistarar Real tóku toppsæti deildarinnar með sigrinum. Þeir eru með tíu stig eftir fjórar umferðir. Levante er með þrjú stig.

Levante 0 - 2 Real Madrid
0-1 Vinicius Junior ('16 )
0-2 Karim Benzema ('95 )

Alaves hafði betur í jöfnum og bragðdaufum leik gegn Athletic Bilbao. Rodrigo Ely gerði eina mark leiksins með skalla eftir aukaspyrnu Lucas Perez á 74. mínútu.

Bæði lið hafa byrjað nýtt tímabil illa. Bilbao er aðeins með þrjú stig og Alaves fjögur.

Þá skoraði Osasuna tvö í góðum sigri gegn Celta Vigo. Facundo Roncaglia og Jonathan Calleri, fyrrum leikmaður West Ham, gerðu mörkin.

Osasuna er með sex stig eftir sigurinn, Celta er með fimm.

Alaves 1 - 0 Athletic Bilbao
1-0 Rodrigo Ely ('74 )
Rautt spjald: Ruben Duarte, Alaves ('86)

Osasuna 2 - 0 Celta
1-0 Facundo Roncaglia ('23 )
2-0 Jonathan Calleri ('76 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 29 22 6 1 64 20 +44 72
2 Barcelona 29 19 7 3 60 34 +26 64
3 Girona 29 19 5 5 59 34 +25 62
4 Athletic 29 16 8 5 50 26 +24 56
5 Atletico Madrid 29 17 4 8 54 34 +20 55
6 Real Sociedad 29 12 10 7 42 31 +11 46
7 Betis 29 10 12 7 34 33 +1 42
8 Valencia 28 11 7 10 32 32 0 40
9 Getafe 29 9 11 9 37 42 -5 38
10 Villarreal 29 10 8 11 47 51 -4 38
11 Las Palmas 29 10 7 12 29 32 -3 37
12 Osasuna 29 10 6 13 33 43 -10 36
13 Alaves 29 8 8 13 26 35 -9 32
14 Mallorca 29 6 12 11 25 35 -10 30
15 Vallecano 29 6 11 12 25 38 -13 29
16 Sevilla 29 6 10 13 36 44 -8 28
17 Celta 29 6 9 14 32 44 -12 27
18 Cadiz 29 3 13 13 20 40 -20 22
19 Granada CF 28 2 8 18 30 58 -28 14
20 Almeria 29 1 10 18 28 57 -29 13
Athugasemdir
banner
banner
banner