Wolves er að skipta um vinstri bakvörð en Ruben Vinagre er á leið til Olympiakos á láni út tímabilið.
Olympiakos fær kaupmöguleika með lánssamningnum sem hljóðar uppá 22 milljónir punda. Hjá Olympiakos mun Vinagre spila með mönnum á borð við Ruben Semedo, Rafinha, Jose Holebas, Mathieu Valbuena og Ögmundi Kristinssyni.
Wolves ætlar að fylla í skarðið með Rayan Aït-Nouri, 19 ára varnarmanni Angers sem á tvo leiki að baki fyrir U21 landslið Frakka.
Ait-Nouri, sem vann sér inn sæti í byrjunarliði Angers á síðustu leiktíð, kemur á eins árs lánssamningi með 20 milljón punda kaupmöguleika.
Sky Sports greinir frá þessu og segir skiptin vera svo gott sem frágengin.
Athugasemdir