Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 04. október 2020 11:20
Ívan Guðjón Baldursson
Zorc: Búinn að segja 27 sinnum að hurðin sé lokuð
Mynd: Getty Images
Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála hjá Borussia Dortmund, er orðinn hundleiður á að þurfa að endurtaka sig endalaust hvað varðar framtíð Jadon Sancho.

Ungstirnið var gríðarlega eftirsótt af Manchester United í sumarglugganum en Rauðu djöflunum mistókst að reiða fram nægilega hátt tilboð þar sem Dortmund vildi 105 milljónir punda fyrir framherjann.

„Hurðin er lokuð, ég er búinn að segja þetta 27 sinnum!" sagði Zorc við fréttamenn í gær, laugardag.

Leikmönnum Dortmund hefur verið bannað að tjá sig um Sancho en Thomas Meunier stóðst ekki mátið þegar hann labbaði framhjá myndavélum Sky Sports News.

„Sancho verður áfram," sagði Meunier við myndavélarnar á leið sinni á æfingasvæðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner