Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mán 04. október 2021 13:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ásdís Karen áfram hjá Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásdís Karen Halldórsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Val. Ásdís Karen er 22 ára kantmaður sem gekk til liðs við félagið frá KR árið 2018.

Hún skoraði fimm mörk í átján leikjum í sumar þegar Valur varð Íslandsmeistari.

Ásdís Karen á að baki 99 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim nítján mörk.

Hún lék á sínum tíma 31 leik fyrir yngri landslið Íslands og skoraði í þeim sjö mörk.

„Hún átti frábært tímabil síðastliðið sumar og við hlökkum til að fylgjast áfram með henni vaxa á Hlíðarenda," segir í tilkynningu Vals á Facebook-síðu félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner