Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. október 2021 21:25
Ívan Guðjón Baldursson
Fjórar mikilvægar framlengja við Stjörnuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir lykilmenn meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni hafa framlengt samninga sína við félagið eftir að hafa endað í fjórða sæti í Pepsi Max-deildinni.

Stjarnan lauk keppni með 27 stig úr 18 leikjum, aðeins tveimur stigum eftir Þrótti R. í þriðja sæti.

Varnarjaxlinn Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, fædd 1998, spilaði alla leiki Stjörnunnar í efstu deild í sumar rétt eins og Gyða Kristín Gunnarsdóttir, 2001, sem skoraði tvö mörk í leiðinni.

Þær skrifuðu báðar undir þriggja ára samninga rétt eins og tvær reyndari, Arna Dís Arnþórsdóttir fædd 1997 og Sóley Guðmundsdóttir fædd 1993 sem byrjaði aftur í knattspyrnu í sumar.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Garðbæinga sem stefna á að vera með gott kvennalið næstu árin.
Athugasemdir
banner
banner
banner