Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 04. október 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Sá við Lewandowski með stórbrotinni vörslu
Kevin Trapp
Kevin Trapp
Mynd: EPA
Kevin Trapp, markvörður Eintracht Frankfurt, þurfti að taka á stóra sínum er liðið vann Þýskalandsmeistara Bayern München í þýsku deildinni í gær.

Staðan var 1-1 í leiknum og var síðari hálfleikurinn hafinn er Bayern fékk góða sókn. Það kom glæsileg fyrirgjöf frá Niklas Süle og var Robert Lewandowski einn og óvaldaður í teignum.

Það virtist hreinlega ómögulegt fyrir hann að skora ekki en Trapp sá við honum með því að stinga hægri fætinum út. Stórkostleg björgun á augnabliki sem hefði getað verið vendipunktur leiksins.

Hægt er að sjá vörsluna hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner