Brasilíski vængmaðurinn Douglas Cousta yfirgaf Juventus í sumar og ákvað að halda til heimalandsins og spila með Gremio.
Costa gerði frábæra hluti í Evrópu þar sem hann spilaði fyrir Shakhtar Donetsk, Bayern München og Juventus.
Hann ákvað að fara aftur til Brasilíu í sumar og spila fyrir uppeldisfélagið sitt, Gremio, en hann ákvað að minna á sig í nótt í 2-1 tapi liðsins gegn Sport Recife.
Costa fékk boltann hægra megin við vítateiginn, færði boltann til vinstri og klíndi honum í samskeytin. Gersamlega óverjandi.
Þetta mark skilaði þó ekki sigri og er Gremio í þvílíku basli og situr í 18. sæti deildarinnar með 22 stig eftir 21 leik. Fyrir utan þetta mark hefur Costa verið arfaslakur og var þetta hans fyrsta mark á tímabilinu en leyfum því að vera aukaatriði í þessari frétt.
Sjáðu markið hjá Costa
Athugasemdir