Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. október 2021 16:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjö á U21 árs aldri í A-landsliðinu
Icelandair
Ísak Bergmann, Andri Lucas og sá elsti í hópnum, Birkir Már.
Ísak Bergmann, Andri Lucas og sá elsti í hópnum, Birkir Már.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sjö leikmenn sem eru í A-landsliðshópnum fyrir komandi leiki gegn Armeníu og Liechtenstein eru gjaldgengir í U21 árs landsliðinu.

Það eru markverðirnir Elías Rafn Ólafsson og Patrik Sigurður Gunnarsson, miðjumennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson, Þórir Jóhann Helgason, Mikael Egill Ellertsson og Andri Fannar Baldursson og sóknarmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen.

Mikael Egill varð sá sjöundi þegar hann var kallaður í hópinn úr hópnum hjá U21 landsliðinu vegna meiðsla Jóhanns Bergs Guðmundssonar.

Þeir Andri Fannar og Ísak Bergmann hafa báðir spilað sjö A-landsleiki og þeir Þórir Jóhann og Andri Lucas hafa spilað þrjá. Patrik, Elías og Mikael Egill eiga eftir að spila sinn fyrsta landsleik.

Ísak er fæddur árið 2003 og er enn gjaldgengur í U19 ára landsliðið.

U21 landsliðið á leik gegn Portúgal í þessum landsleikjaglugga en Davíð Snorri Jónasson getur ekki nýtt sér þá sjö leikmenn sem eru með aðalliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner