Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 04. nóvember 2019 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Balotelli svarar fyrir sig: Vaknið þið fáfróða fólk
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli yfirgaf völlinn þegar Brescia heimsótti Hellas Verona um helgina. Balotelli sneri þó aftur inn á völlinn og hélt leik áfram.

Stjóri Verona sagði eftir leikinn að ekkert rasískt aðkast hafi átt sér stað og þá hefur höfuðpaur 'Ultras' sveitar Verona liðsins skotið á Balotelli eftir leikinn. Meira um það má lesa hér.

Balotelli svaraði ummælum höfuðpaursins. „Þetta snýst ekki um knattspyrnu lengur. Nú tjáið þið ykkur um félagslega og sögulega hluti sem eru miklu stærri en þið með ykkar litla skilning skiljið. Þið eruð í ruglinu með þessum ummælum. Vakniði nú fáfróða fólk."

Balotelli fékk stuðning frá þjálfara sínum eftir leikinn sem hrósaði Balotelli fyrir viðbrögðin í gær.
Athugasemdir
banner
banner