Spánverjinn knái, David Silva, missir að öllum líkindum af stórleik Manchester City og Liverpool á sunnudaginn næstkomandi.
Manchester City vann Southampton 2-1 um helgina þar sem Silva fór af velli í hálfleik. Pep Guardiola, stjóri City, segir að hann hafi orðið fyrir vöðvameiðslum og verði frá keppni í 10-12 daga.
Manchester City vann Southampton 2-1 um helgina þar sem Silva fór af velli í hálfleik. Pep Guardiola, stjóri City, segir að hann hafi orðið fyrir vöðvameiðslum og verði frá keppni í 10-12 daga.
„David var meiddur. Þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik sagði hann mér að hann væri með eymsli í vöðva. Hann gat ekki spilað meir og þegar menn eru að glíma við vöðvameiðsli tekur það alltaf að lágmarki 10-12 daga að jafna sig," sagði Guardiola.
Þetta þýðir þá að hinn 33 ára gamli Silva verður ekki klár í slaginn fyrr en eftir komandi landsleikjahlé.
Athugasemdir