Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton, sendi í dag kveðju á liðsfélaga sinn Andre Gomes.
Portúgalski miðjumaðurinn fótbrotnaði á skelfilegan hátt gegn Tottenham í gær og verður lengi frá keppni.
Portúgalski miðjumaðurinn fótbrotnaði á skelfilegan hátt gegn Tottenham í gær og verður lengi frá keppni.
„Við erum öll með þér! Sé þig vonandi aftur á vellinum eins fljótt og mögulegt er 💙" sagði Gylfi á Instagram í dag og birti gamla mynd af sér og Gomes.
Gylfi hefur verið á bekknum í síðustu leikjum Everton en eftir meiðsli Gomes í gær má telja líklegt að hann byrji gegn Southampton um næstu helgi.
Hér að neðan má sjá kveðju Gylfa og kveðjur frá fleiri liðsfélögum Gomes.
Estamos contigo, irmão!! #forçaAndré 🙌🏻 @aftgomes pic.twitter.com/nk2g8EfdgX
— Richarlison Andrade (@richarlison97) November 3, 2019
Praying for you @aftgomes 🙏🏽 stay strong my friend 💙 pic.twitter.com/DnDqIXStqM
— Theo Walcott (@theowalcott) November 3, 2019
Athugasemdir