Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 04. nóvember 2019 21:45
Aksentije Milisic
Luis Suarez meiddur - Frá í nokkrar vikur
Mynd: Getty Images
Barcelona varð fyrir áfalli þegar Luis Suarez, framherji liðsins, meiddist í tapinu gegn Levante um helgina. Hann þurfti þá að fara af velli undir lok fyrri háfleiks.

Suarez meiddist á kálfa en þetta er í annað skiptið á tímabilinu sem hann lendir í þessum meiðslum. Í fyrra skiptið gerðist það í fyrsta leik tímabilsins hjá Börsungum.

Talið er að þessi meiðsli munu halda Suarez frá keppni næstu þrjár vikurnar.

Barcelona er sem stendur á toppnum í spænsku deildinni á markatölu en Real Madrid og Real Sociedad koma í næstu tveimur sætum fyrir neðan. Öll liðin eru með 22 stig en Sociedad hefur leikið einum leik meira.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner