Liverpool vann á laugardag karaktersigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni. Aston Villa leiddi þar til skammt var eftir en mörk frá Andew Robertson og Sadio Mane tryggðu Liverpool sigurinn, 1-2 á Villa Park.
Sadio Mane skoraði í uppbótartíma með skalla eftir hornspyrnu sem Trent Alexander-Arnold tók. Mane hafði skömmu áður lagt upp mark Robertson.
Sadio Mane skoraði í uppbótartíma með skalla eftir hornspyrnu sem Trent Alexander-Arnold tók. Mane hafði skömmu áður lagt upp mark Robertson.
Óhætt er að segja að Mane hafi fórnað sér fyrir málstaðinn en hann fékk löppina á varamanninum Jonathan Kodija, sem reyndi að ná til knattarins, beint í andlitið. Mynd af atvikinu má sjá hér að neðan.
We saw the goal.
— FootballFunnys (@FootballFunnnys) November 3, 2019
We saw the celebration.
We didn't see the price..we didn't see the boot hitting his face after the winning header..looks like the face took a solid knocking but he didn't show the pain...
Body on the line for the 3 points...absolute commitment..what a man! 🙌🙌 pic.twitter.com/DFRSFhMP7i
Athugasemdir