Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 04. nóvember 2019 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Leikmaður Mónakó sparkaði í VAR-skjá í reiðiskasti
Mynd: Sky Sports
Hægri bakvörður Mónakó er ekkert sérstaklega hrifinn af VAR. Ruben Aguiler heitir leikmaðurinn en hann var rekinn af velli í gærkvöldi.

Aguilar fékk að líta rauða spjaldið í uppbótartíma í 0-1 tapi gegn St. Etienne. Dómari leiksins gaf honum rautt spjald og VAR breytti ekki dómnum.

Aguilar var ekki parsáttur við niðurstöðuna og þrumaði í VAR-skjáinn sem er við varamannabekki liðanna. Í kjölfarið strunsaði hann til búningsherbergja.

Mónakó situr í 15. sæti Ligue 1. Liðið er þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Myndband af athæfi Aguilar má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner